VÖÐVABYGGING
Við uppbyggingu vöðva er mikilvægt að líkamann fái amínósýrur í blóðið, einkum fljótlega eftir æfingar. ProFitt Vöðvabygging er blanda af mysupróteini og hrísgrjónatrefjum en hvort tveggja er uppruni amínósýra sem líkaminn vinnur úr hráefni til að byggja upp vöðva. Hrísgrjónatrefjarnar eru fljótar að umbreytast í amínósýrur og fylla því hratt uppí brenndar vöðvasellur. Þannig er tilvalið að neita ProFitt Vöðvabyggingar strax eftir æfingu því þá er líkaminn tilbúinn til að taka hratt upp byggingarefni fyrir æfða vöðvana, byggingarefni sem ProFitt Vöðvabygging skaffar. Mysuprótein myndar tiltölulega hátt hlutfall langra amínósýrukeðja en þannig keðjur eru lengi að nýtast líkamanum til uppbyggingar og tekur líkaminn því lengri tíma að nýta mysupróteinið. Þannig vinnur ProFitt Vöðvabygging vel í að byggja upp vöðvavef sérstaklega fyrir þá sem eru að æfa að staðaldri. Fyrst með hraðri uppfyllingu þ.e. hrísgrjónatrefjarnar umbreytast á 15-30 mínútum og síðan með mysupróteininu sem umbreytist á c.a. 2,5 klukkustund. Ráðlögð notkun: Hristið saman 2-3 matskeiðar af Profitt og léttmjólk eftir æfingu. Innihaldslýsing |



